Ýmislegt er sagt um reykingar - en hvað er satt?
Margir halda að reykingar hafi áhrif á það hvort fólk er of þungt eða í kjörþyngd - en það er auðvitað ekki rétt. Ekki þarf ekki annað en skoða aðeins þann hóp fólks sem reykir og þá sést strax að hann samanstendur af fólki sem er af öllum stærðum og gerðum.
Hvað mataræðið varðar þá gildir það sama um alla - hvort sem þeir reykja eða ekki - að borða hollan og góðan mat í hæfilegum skömmtum og hreyfa sig nægilega mikið. (Skoða bæklinginn Maturinn skiptir máli).
Íslenskar rannsóknir hafa t.d. sýnt að unglingar sem reykja ekki velja frekar hollari mat, hreyfa sig meira og hafa betra þol en þeir sem reykja (HBSC, 2006). Og ekki má gleyma því að við það að hætta að reykja þá eykst þolið og styrkurinn, svo auðveldara verður að hreyfa sig meira.
Sumir sem hætta að reykja finna fyrir löngun í að fá sér eitthvað í staðinn fyrir tóbakið - finnst þeir þurfi að vera að setja eitthvað upp í sig - og leita meira í mat eða sælgæti í staðinn. Þá er bara um að gera að finna sér eitthvað sem slær á þessa löngun án þess að hafa áhrif á þyngdina, t.d. alls konar gómsætir ávextir eða grænmeti tilbúnir í litlum bitum í ískápnum. Vera líka dugleg við að drekka vatn - líka gott að vera með vatnskönnu í ísskápnum.
Svo er gott að hafa nóg að gera á meðan verið er að komast yfir það versta - bæta t.d. meiri hreyfingu við yfir daginn. Það er ekkert nema ávinningur af slíku.
Gott getur verið að lesa reynslusögur annarra, til að sjá hvernig þeir hafa tekist á við tóbaksleysið, á bloggsíðu www.reyklaus.is
Illa lyktandi föt, andfýla, gular tennur og bólur. Hversu flott er það?
Einkenni og afleiðingar reykinganna koma fljótt fram og langtímaafleiðingar eru ekki góðar eða skemmtilegar - hósti, sjúkdómar, fjárhagur. . .
- Eftir aðeins örfáar mínútur getur tóbaksreykurinn gert þig rauðeygða/-n.
- það er vond lykt út úr reykingafólki og vond lykt af fötunum þeirra.
- Húðin verður grárri og óheilbrigðari því reykingar draga úr blóðflæði og þar með súrefni til húðarinnar. Unglingar sem reykja eru líklegri til að fá bólur en aðrir. Svo eldist húðin fyrr hjá reykingafólki = verður hrukkótt og djúpar línur myndast við augun og munninn.
- Áhrifin á hárið eru sömuleiðis slæm - Það verður fljótt líflaust og óheilbrigt að sjá,
- Neglurnar fá gulan blæ og fingurnir líka.
- Tennurnar verða gular og ljótar - lesa meira.
- Munntóbak er á skaðlegt á sama máta og það getur líka orsakað sprungnar varir og blæðandi sár í og við munn. Sjá og lesa meira í Munntóbaksleiknum.
Áhrif á félags- og ástarlífið . . .
- Hvergi má reykja á vinnustöðum fólks og fæstum heimilum.
- Margir sem reykja ekki forðast samneyti við reykingafólk.
- Og flestir þeirra vilja ekki kærastu /-a sem reykir!
Miðað við að sígarettupakki kosti um 830 krónur (ág.09) þá kaupir reykingafólk tóbak að meðaltali fyrir um 6000 kr. á viku, ef það reykir einn pakka á dag, sem gerir um 24.000 kr. á mánuði og 303.000 kr. á ári!
Með því að nota reiknivélina geturðu auðveldlega fundið út hvað reykingar kosta - og hvað þú ert þá að eyða í reykingar. Líka hvað þú getur átt mikinn pening ef þú gerir það ekki eða hættir. Væri t.d. ekki gaman að nota þennan pening til að fara t.d. í utanlandsferð, gera eitthvað skemmtilegt með vinunum, kaupa eitthvað sem þig langar að eignast eða bara leggja inn á bankareikning og fá vexti?
- Reykingar skaða þig strax. Ef þú reykir núna þá er reykurinn að skaða þig núna.

- Reykingar skaða nærri hvern einasta líkamshluta reykingamanns – ekki bara lungun. En lungun hætta að starfa eins og þau eiga að gera, þolið minnkar og líkaminn þroskast ekki á eðlilegan hátt.
- Reykingarnar halda svo áfram að skaða líkamann á margvíslegan máta. Sérstök síða er um áhrif tóbaksins á líkamann. Smellið á tengilinn til að skoða hana.
- Flestir sem reykja byrja fyrir 16 ára aldur en mjög fáir byrja eftir unglingsárin. En ef þú byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða 73%, á því að þú reykir aldrei!
- Margir byrja að reykja bara afþví félagarnir gera það. Reynið að standast þrýstinginn og látið ekki hafa ykkur út í að gera eitthvað sem ykkur innst inni langar ekki til (t.d. að verða fíklar fyrir lífstíð).
-
Fjórir af hverjum fimm unglingum sem ánetjast tóbaki verða reykingamenn til frambúðar.
-
Þegar ungir reykingamenn voru spurðir hvort þeir héldu að þeir myndu reykja eftir 20 ár svöruðu aðeins 5% játandi - en í raun reyktu þá 85% ennþá og 70% þeirra sögðust óska að þeir hefðu aldrei byrjað.
En ef hætt er að reykja þá kemur ávinningurinn fljótt í ljós!
-
20 mín: Púls og blóðþrýstingur í eðlilegt horf
-
8 klst.: Líkur á kransæðastíflu minnka
-
24 klst.: Lungun byrja að losa sig við slím
-
48 klst.: Nikótínið horfið úr líkamanum
-
72 klst.: Meiri orka
-
2-12 vikur: Aukið blóðflæði
-
3-9 mán.: Lungnastafsemi batnar um 5-10%
-
5 ár: Líkur á kransæðastíflu minnka um helming.
Reyklaus.is getur hjálpað þér að hætta að reykja - með persónulegri aðstoð og án kostnaðar!
Stöðugt færri Íslendingar reykja - jafnt unglingar sem fullorðnir 
Óbeinar reykingar skaða gæludýrin
Kettir og hundar sem anda að sér tóbaksreyk geta fengið lungnakrabbamein.
Fuglar geta átt í öndunarvandamálum ef þeir búa á heimilum þar sem reykt er.
Tóbak leiðir af sér eiturúrgang
Þegar sígaretturstubbar komast í ár, vötn og haf þá geta eiturefni þeirra drepið fiska og aðrar lífverur.
Flestir sígarettufilterar eru gerðir úr plasttrefjum. Þegar dýr éta þá óvart þá geta þau orðið mjög veik eða jafnvel dáið.
Tóbak tekur upp svæði sem nýta mætti til ræktunar matjurta
Bændur gætu framleitt matjurtir sem nægðu til að fæða 10-20 milljónir manna á ári ef þeir nýttu svæðin sem nú eru notuð til tóbaksframleiðslu.
Tóbak skaðar skóglendi
Á mörgum stöðum þar sem tóbak er ræktað hefur skóglendi horfið. Bændurnir höggva trén og brenna þau til að þurrka tóbakslaufin. Þegar skóglendi hverfur þá missa skógardýrin heimili sitt.
Sígarettur geta einnig verið orsök skógarelda. Mestu skógareldar heimssögunnar hafa orðið vegna logandi sígarettu.
Tóbaksframleiðendur hafa aðeins áhuga á að græða peninga – þeim eru alveg sama um heilsu fólks.
Þeir eyða milljörðum í að lokka ungt fólk til að nota tóbak. Þegar það tekst þá vilja þeir halda þessum nýju viðskiptavinum sem lengst = ná af þeim peningunum, heilsunni og jafnvel lífinu. Er það þetta sem þú vilt?
Nikótínfíknin tryggir þeim viðskiptavini
• Innan örfárra sekúndna frá því að þú dregur að þér tóbaksreyk er nikótínið komið til heilans. Líkaminn bregst við með því að vilja meir og meir = fastur í nikótínnetinu!
• Tóbaksframleiðendur vita að meira en þriðji hver sem prófar að reykja verður reglulegur reykingamaður = það allt til þess að vinna að fá þig til að prófa svo þú verðir tryggur viðskiptavinur.
Sífelld þörf fyrir nýja viðskiptavini
• Árlega deyja hundruð þúsundir manna af völdum reykinga og svo tekst mörgum að hætta að reykja = tóbaksframleiðendur þurfa nýja viðskiptavini í staðinn!
• Þá reyna þeir að lokka til sín ungt fólk, því þeir vita að mjög fáir byrja að reykja þegar þeir eru orðnir fullorðnir = unga fólkið er fórnarlambið!
Reyna að ná þér með auglýsingum – líka óbeinum
• Tóbaksframleiðendur skapa ímynd sem þeir telja að ungu fólki líki og birta sem auglýsingar. Og til að ná til sem flests ungs fólks þá eyða þeir mörgum milljörðum árlega í auglýsingar.
• Á Íslandi er bannað að auglýsa tóbak, en í erlendum tímaritum, íslenskum flugvélablöðum og víðar sjást þessar auglýsingar samt.
• Framleiðendurnir eyða miklum fjármunum í að skoða hvað það er sem ungu fólki finnst flott og hvers konar auglýsingar höfða til ungs fólks, í þeim tilgangi að fá ungt fólk til að byrja að reykja.
• Kvikmyndastjörnur, tískusýningafólk, kappaksturshetjur og rokkstjörnur, eða aðra sem ungt fólk lítur á sem fyrirmyndir, fá þeir til liðs við sig til að lokka þig og annað ungt fólk til að reykja.
. . . líka á óbeinan hátt
• Þeir ná líka til unga fólksins á óbeinan hátt, t.d. með því að koma því í kring að reykt er í bíómyndum. Taktu eftir þessu næst þegar þú ferð í bíó og spurðu þig hvort verið sé að reyna að segja þér að það sé flott að reykja með því að láta fólkið í myndinni reykja?
Þeir segjast ekki vera að lokka ungt fólk – en trúirðu því?
Þeir setja á markað sígarettur og munntóbak með sælgætisbragði.
Þeir setja tóbaksauglýsingar í blöð unga fólksins.
Þeir auglýsa sígarettutegundir með lítilli tjöru („low tar“) og léttar („light“) til að fá fólk til að halda að þær séu minna skaðlegar. En sannleikurinn er sá að þær eru jafn skaðlegar og aðrar; þetta hafa rannsóknir sannað.
Þeir eru sérstaklega að reyna að ná til kvenna og ungra stúlkna með útlitinu á pökkunum og auglýsngum í tískublöðum.
Láttu þá ekki stjórna lífi þínu!
Þú ræður því hvort þú vilt eyða lífi þínu sem þræll tóbaksframleiðandanna eða ekki. Þú verður það ekki ef þú
- notar ekki tóbak,
- hættir að nota tóbak (ef þú ert þegar byrjaður/byrjuð),
- lætur auglýsingarnar eða fræga fólkið í bíómyndunum ekki ná til þín,
- tekur þátt í „ungt fólk gegn tóbaki“ -hreyfingu.