Vímuefni

Hvað eru vímuefni?

Notkun vímuefna er fyrst og fremst stórhættuleg heilsunni, og þar að auki ólögleg.

Til eru margir flokkar og tegundir vímuefna. Öll eiga þau það sameiginlegt að valda ákveðinni líðan og hegðan með því að hafa áhrif á ástand og starfsemi miðtaugakerfis líkamans (heili, mæna og taugafrumur). Þau eiga það líka sameiginlegt að ræsa svonefnt umbunarkerfi í heilanum og hafa auk þess áhrif á boðefni heilans.

Vímuefni eru oft flokkuð eftir almennum áhrifum þeirra á miðtaugakerfi líkamans:

Róandi efni hægja á starfsemi miðtaugakerfisins. Þetta eru t.d. áfengi, heróín og sterk verkjalyf.

Örvandi efni hraða starfsemi miðtaugakerfisins. Þetta eru t.d. amfetamín, e-taflan og kókaín.

Ofskynjunarlyf brengla skynjun fólks á raunveruleikanum og valda þar með ofskynjunum (að sjá hluti sem eru ekki til staðar). Þetta eru t.d. kannabis, sveppir og LSD.

Áhrif þessara efna á einstaklinginn eru mjög misjöfn, velta meðal annars á andlegu og líkamlegu ástandi hans.

Ólögleg vímuefni

Samkvæmt lögum er með öllu bannað að flytja inn, framleiða, selja, kaupa, vinna eða hafa undir höndum flest þau efni sem talað er um hér á eftir.

Ólögleg vímuefni:
Kannabis og skyld efni
Amfetamín
Kókaín
E-tafla – MDMA og skyld efni

Almennt má segja að við vímuefnanotkun verði truflun á skynjun á umhverfi, tilfinningum, einbeitingu, minni og hæfileikanum til að leysa ýmis verkefni.

Sum vímuefni hefta jafnframt heilastöðvar sem stýra lífsnauðsynlegri starfsemi, s.s. andardrætti og hjartslætti. Neyslu vímuefna fylgja ákveðin einkenni og hætta s.s. að verða vanabindandi, aukið þol gagnvart efninu sem leiðir til aukinnar neyslu til að finna áhrif, hætta á eitrunum – jafnvel lífshættulegum, fráhvarfseinkenni sem geta verið mjög erfið.

Engin innihaldslýsing

Ekki er hægt að sjá hvað er í „bútnum“ (hassmolanum), kúlunni, pillunni, duftinu eða sprautunni. Og ekki er heldur hægt að sjá hve stóran skammt er verið að kaupa í raun og veru, né heldur hvort fleiri skaðlegum efnum hefur verið blandað saman við.

Blöndun

Hættan á of stórum skammti verður enn meiri ef áfengis eða einhverra annarra efna eða lyfja er neytt samtímis vímuefninu. Áhrif blandaðrar neyslu eru óútreiknanleg og oft lífshættuleg.

Sprautur

Notkun sprauta getur leitt til sýkinga og smitsjúkdóma. Sé sprautu deilt með öðrum er hægt að smitast af alvarlegum sjúkdómum, s.s. lifrarbólgu C og alnæmi/eyðni.

Meðganga

Neyti kona vímuefna á meðgöngunni getur fóstrið skaðast alvarlega.

Dómgreind fólks í vímu er skert og skynjun þess brengluð. Fólk í vímu á því frekar en allsgáð fólk á hættu að verða fyrir eða valda slysi – jafnvel dauðaslysi –, lenda í deilum og taka ákvarðanir sem oft hafa mjög afdrifaríkar og alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Nánari upplýsingar má finna í bæklingum Staðreyndir um vímuefni

Tenglar í fræðsluefni

Tenglarnir hér opnast í fræðsluefni um afleiðingar neyslu vímuefna og hvar hjálp er að finna hafi einhver ánetjast þeim:

Orsök og afleiðingar neyslu vímuefna

Áttu vin í vanda? - Listi yfir aðila sem veita allskyns aðstoð. Upplýsingar um símanúmer, vefslóðir ofl. eru líka á síðunni. 

 



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica