Bækur, bæklingar, kennsluefni og skýrslur

Í þessum hluta heimasíðunnar er skrá yfir bækur, bæklinga, kennsluefni og rit sem gefin hafa verið út á vegum Lýðheilsustöðvar og þeirra stofnana sem nú tilheyra Lýðheilsustöð. Eins og sést í listanum hér til vinstri þá er efnið flokkað eftir málaflokkum. Margt er hægt að panta og fá sent, annað er eingöngu hægt að nálgast hér á heimasíðunni eða koma í stofnunina og skoða þar.
Flest efni Lýðheilsustöðvar er ókeypis - einungis þarf að greiða sendingarkostnað.
Þegar panta þarf margar tegundir útgefins efnis í einu
Athugið að ef skólar, heilsugæslustöðvar og aðrar stofnanir þurfa að panta mikið magn útgefins efnis í einu og margar tegundir, geta þeir útbúið heildarlista yfir pantanir og sent beint í tölvupósti á pantanir@lydheilsustod.is. Munið að tilgreina allar nauðsynlegar upplýsingar til að auðvelda afgreiðslu:
- - Útgáfunafn
- - Fjölda
- - Fullt nafn þess sem pantar
- - Kennitölu
- - Heimilisfang með póstnúmeri
- - Síma
- - Netfang
