Skrá yfir útgefin rit um næringarmál
Hér eru skráð í stafrófsröð þau rit um næringarmál sem Lýðheilsustöð hefur staðið að útgáfu að og kynnt eru hér að neðan.
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! Skýrsla, undirbúnings- og skipulagshluti
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! Skýrsla, upphaf verkefnisins
Fólat fyrir konur sem geta orðið barnshafandi
Framboð á fæðuvörum í íþróttamannvirkjum
Holdafar - hagfræðileg greining
Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri?
Hvað borða íslensk börn og unglingar?
Íþróttafélög og íþróttamannvirki - Framboð á matvöru
Könnun á mataræði Íslendinga 1990, 1, helstu niðurstöður
Könnun á mataræði Íslendinga 1990, 2, mataræði og mannlíf
Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum
Ráðleggingar um mataræði aldraðra í heimahúsum
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - fyrir fullorðna og börn frá 2ja ára aldri
Ráðleggingar um næringu barna - fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleiksskóla
Matur og meðganga
Texti bæklingsins, og útdráttur, hefur verið þýddur á 7 tungumál.
Smellið á tengilinn til að skoða og prenta út textana.
Albanska, arabíska, enska, pólska, rússneska, spænska, taílenska.
Fólat - fyrir konur sem geta orðið barnshafandi
Fræðslubæklingur um fólat og mikilvægi þess að konur taki inn fólat - sérstaklega eru konur á barneignaaldri hvattar til að taka inn fólat fyrir þungun.
Útgefinn af Lýðheilsustöð, Miðstöð mæðraverndar og Landlæknisembættinu (ágúst 2007).
Skoða ítarefni um fólat - fyrir konur í sérstökum áhættuhópi
Næring ungbarna
Næring ungbarna er bæklingur með leiðbeiningum um fæðuval fyrir barnið fyrsta árið. Þar er einnig að finna nokkrar uppskriftir að hentugum réttum fyrir barnið og ýmis góð ráð. Bæklingurinn er gefinn út af Manneldisráði og Miðstöð heilsuverndar barna.
Hægt er að panta bæklinginn á Miðstöð heilsuverndar barna í síma 585 1350
Texti Næringar ungbarna hefur verið þýddur á 5 tungumál
Smellið á tengilinn til að skoða og prenta textann á ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku.
Ráðleggingar um næringu barna - fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla
Fræðslubæklingur með ráðleggingum um næringu barna að 2ja ára aldri. Bæklingurinn er einkum ætlaður dagforeldrum og starfsfólki ungbarnaleiksskóla.
Um næringu barna 2ja ára og eldri má lesa í Ráðleggingum um mataræði og næringarefni fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri.
Erlend tungumál:
Texti bæklingsins „Ráðleggingar um næringu barna - fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla" hefur verið þýddur á nokkur erlend tungumál.
Þýðingarnar eru hér (smellið).
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni-fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri - bæklingur
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni eru endurskoðuð útgáfa fyrri manneldismarkmiða, þar sem tekið er mið af nýjum vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu og niðurstöðum kannana á mataræði Íslendinga, norrænum næringarráðleggingum og ráðleggingum annarra þjóða. Ráðleggingunum er einnig ætlað að vera til viðmiðunar fyrir skóla, heilsugæslu, matvælaframleiðendur, stór eldhús og aðra sem annast fræðslu um næringarmál eða hafa áhrif á mataræði almennings.
Einnig var gefið út veggspjald með myndunum úr bæklingnum, þar sem fram kemur kjarni ráðlegginganna.
Handbók um mataræði aldraðra
Handbók um mataræði aldraðra er ætluð þeim sem sjá um matseld fyrir stofnanir eða deildir fyrir aldraða. Handbókin kemur í handhægri plastmöppu í A4 stærð.
Hægt er að skoða og kynna sér innihald handbókarinnar með því að smella á þennan tengil.
(Ath. ekki er gert ráð fyrir að hver stofnun eða fyrirtæki þurfi nema eina möppu - en reynt er að verða við sérstökum óskum um fleiri eintök).
Útdráttur fyrir eldra fólk (PDF-skjal, 109 KB)
Ráðleggingar um mataræði aldraðra í heimahúsum
Ráðleggingar um mataræði aldraðra í heimahúsum er stutt samantekt á helstu atriðum úr Handbók um mataræði aldraðra, sem ætluð er stofnunum. Ráðleggingarnar koma í A4 stærð og getur hver og einn prentað þær hér beint af síðunni. En einnig er hægt að fá ráðleggingarnar sendar heim.
Smellið á myndina hér til hliðar til að eða þennan tengil til að skoða ráðleggingarnar (PDF-skjal, opnast í nýjum glugga).
Handbók fyrir skólamötuneyti.
Handbók fyrir skólamötuneyti er með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk um matseðlagerð, hollustu, matreiðslu, hreinlæti, innkaup og birgja. Starfshópur á vegum Manneldisráðs vann handbókina en verkefnið var styrkt af Fræðsluráði Reykjavíkur, Hjartavernd, Krabbameinsfélaginu og Manneldisráði.
Þeim skólum sem eiga fyrri útgáfu handbókarinnar er eindregið bent á að fá, sér að kostnaðarlausu, þær síður sem hafa verið endurskoðaðar til að setja í handbókina, í stað þeirra sem eru í eldri útgáfunni. Vinsamlega hafið samband með tölvupósti til að panta endurskoðaðar síður.
Matseðlar fyrir skólamötuneyti: tillaga að 10 vikna matseðli (uppfærðir okt. 2009)
.
Síðdegishressing á frístundaheimilum (PDF)
Handbók fyrir leikskólaeldhús
Handbók fyrir leikskólaeldhús er vegleg og fallega myndskreytt mappa með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk leikskóla um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, matreiðslu, sérfæði, hreinlæti og innkaup. Einnig er kynnt ný fyrirmynd að æskilegri samsetningu máltíða sem kölluð er Diskurinn. Handbókinni fylgir líka veggspjald með helstu minnispunktum úr handbókinni til að hengja upp í eldhúsinu. Auk þessa er í henni er tillaga að sex vikna matseðli ásamt uppskriftum. Hér má sjá dæmi um næringarútreikninga fyrir einn dag og útreikninga fyrir yngri börn.
Skoða handbókina (endursk. útg., apríl 2009)
.
Aukablað leikskóla (endursk. útg., apríl 2009)
Borðum meiri fisk! Uppskriftir að 20 ljúffengum fiskréttum
Borðum meiri fisk! er bæklingur með 20 ljúffengum og hollum fiskuppskriftum - allt frá hversdags mat upp í hátíðarmat.
Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimilum
Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimium eru ráðleggingar fyrir starfsfólk um hvað gott sé að hafa á boðstólunum sem síðdegishressingu fyrir börn í eftirskólum og á frístundaheimilum. (Lesa meira).
Smellið á tengilinn til að skoða veggspjaldið og prenta það út.
Íþróttafélög og íþróttamannvirki - framboð á matvöru
Lýðheilsustöð hefur gefið út tillögur að framboði á matvöru hjá íþróttafélögum og í íþróttamannvirkjum.
Tekið í taumana

Tekið í taumana er bæklingnur þar sem fjallað er um þátt hreyfingar, mataræðis og ekki síst hugarfars við að halda þyngdinni í skefjum. Þar er líka að finna ýmis sjálfspróf og tillögur að matseðlum.
Borðar þú nógu góðan mat?
Borðar þú nógu góðan mat? er bæklingur með ábendingum um hvernig er hægt að breyta mataræðinu og borða í samræmi við ráðleggingar manneldisráðs.
Eingögnu til á rafrænu formi.
Maturinn skiptir máli
Maturinn skiptir máli er fræðslubæklingur ætlaður er fyrir nemendur í 8. bekk er m.a. fjallað um gildi morgunverðar, megrunaráráttu margra unglinga, mikilvægi næringarríkrar fæðu og sykurneyslu unglinga.
Ef kólesterólið mælist of hátt
Ef kólesterólið mælist of hátt (3. útgáfa) er bæklingur sem ætlaður er þeim sem mælast með of hátt kólesteról. Í honum er fjallað almennt um kólesteról blóðs, skýrt frá áhrifum mataræðis á kólesterólið og þar eru einnig hagnýtar ábendingar um fæðuval. Hægt er að skoða bæklinginn og panta hér á síðunni.
Matreitt fyrir marga
Matreitt fyrir marga er bæklingur sem ætlaður er fyrir stjórnendur og starfsmenn mötuneyta og stóreldhúsa. Í honum eru ábendingar um hollustu og æskilega matargerð og þar er einnig að finna fáeinar tillögur að matseðlum og uppskriftum.
Útg. 1994
Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum
Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum er bæklingur sem gefinn var út í tengslum við samstarfsverkefni Lýðheilsustöðvar og Vinnueftirlitsins og er hluti af verkefninu „Heil og sæl í vinnunni“.
Skoða Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum
Panta 'Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum'
Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri?
Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? er skýrsla með niðurstöðum rannsóknar á matarvenjum 3ja og 5 ára barna á höfuðborgarsvæðinu 2007. Rannsóknin var unnin á vegum Rannsóknarstofu í næringarfræði (RÍN) í samstarfi við Lýðheilsustöð. Skýrsluna er hægt að fá hjá RÍN, sími: 543 8410.
Holdafar-hagfræðileg greining
Bókin Holdafar-hagfræðileg greining eftir Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur kom út í nóvember 2007.
Bókin er seld í öllum helstu bókaverslunum landsins.
Hvað borða íslensk börn og unglingar? - Könnun á mataræði
Hvað borða íslensk börn og unglingar? er skýrsla um niðurstöður rannsóknar á mataræði 9 og 15 ára barna og unglinga, sem Rannsóknastofa í næringarfræði og Lýðheilsustöð standa að en rannsóknin var unnin af RÍN
2003-2004. Höfundar skýrslunnar eru Inga Þórsdóttir, prófessor og Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands. Að útgáfunni standa Lýðheilsustöð og Rannsóknastofa í næringarfræði.
Skýrslan er fáanleg hjá Rannsóknastofu í næringarfræði sími 543 8410 og hjá Lýðheilsustöð.
Hvað borða Íslendingar. Könnun á mataræði Íslendinga 2002.
Hvað borða Íslendingar - skýrsla, þar sem m.a. er fjallað um þær miklu breytingar sem orðið hafa á mataræði hér á landi síðustu 12 árin, eða frá því síðasta landskönnun var gerð. Eins er þar gerð grein fyrir mismunandi fæðuvenjum og lífsháttum kynjanna og ólíkra aldurshópa.
Verð: 1000 kr
Könnun á mataræði Íslendinga 1990, 1. Helstu niðurstöður
Í þessari fystu skýrslu úr rannsókn á mataræði 1990 er greint frá helstu forsendum og aðferðum rannsóknarinnar, gerð grein fyrir þátttakendum og dregnar saman helstu niðurstöur um mataræði landsmanna.
Útg. 1991
Könnun á mataræði Íslendinga 1990, 2. Mataræði og mannlíf
Í skýslunni er gerð grein fyrir mátíðaskipan og næringargildi máltíða eftir aldri, kyni og atvinnu, svo og tengslum mataræðis og félagslegra þátta.
Útg. 1992
Allt hefur áhrif, einkum við sjálf - Upphaf verkefnisins 2005
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! skýrsla um upphaf verkefnisins.
Viðauki 1 - Grunnskólastjórar
Viðauki 2 - Leikskólastjórar
Viðauki 3 - Nemendur
Viðauki 4 - Foreldrar
Allt hefur áhrif, einkum við sjálf - sameiginlegt þróunarverkefni Lýðheilsustöðvar og 25 sveitarfélaga á Íslandi
Allt hefur áhrif - einkum við sjálf, skýrsla um undirbúning og skipulagshluta verkefnisins.
