Passaðu börnin betur - Lifandi myndir um ýmsar slysagildrur barna
Fyrst birtar í febrúar 2005.
Velferðasjóður barna á Íslandi hefur ákveðið að styrkja gerð upplýsinga- og fræðslumynda í því skyni að draga úr slysum barna. Sjóðurinn fékk Lýðheilsustöð og Tryggingamiðstöðina til samstarfs um verkefnið og er við það miðað að vekja athygli foreldra og forráðamanna barna, sem eru yngri en fjögurra ára, á þeim slysahættum sem leynast víða á heimilum og í næsta umhverfi barna. Aðalpersónan í myndunum heitir Samúel og er spýtustrákur.

