Minna salt í brauðum - fyrir bakara
Lýðheilsustöð útbjó veggspjald í A4 stærð fyrir bakara um minna saltmagn í brauðum. Með því að minnka saltmagn í brauði er stuðlað að minni saltneyslu landsmanna og þar með að bættri heilsu.
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - veggspjald
Ritið Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri var gefið út í nóvember 2006. Myndirnar úr bæklingnum, með kjarnanum úr ráðleggingunum, voru einnig gefnar út á veggspjaldi í A2 stærð.
Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimilum
Ráðleggingar fyrir starfsfólk um hvað gott sé að hafa á boðstólunum sem síðdegishressingu fyrir börn í eftirskólum og á frístundaheimilum. (Lesa meira).
Ráðleggingar um mataræði aldraðra í heimahúsum
Ráðleggingar um mataræði aldraðra í heimahúsum er stutt samantekt á helstu atriðum úr Handbók um mataræði aldraðra, sem ætluð er stofnunum. Ráðleggingarnar koma í A4 stærð og getur hver og einn prentað þær hér beint af síðunni. En einnig er hægt að fá ráðleggingarnar sendar heim.
Smellið á myndina hér til hliðar til að eða þennan tengil til að skoða ráðleggingarnar (PDF-skjal, opnast í nýjum glugga).
5 á dag - Borðum grænmeti og ávexti heilsunnar vegna
Spjald í stærðinni 21x14,8 cm sem minnir á mikilvægi þess að borða a.m.k. 5 skammta af ávöxtum og grænmeti á dag.
DISKURINN - A3 veggspjald
Diskurinn sýnir auðvelda leið að vel samsettri máltíð. Veggspjald í A3 stærð.
DISKURINN - veggspjald A4
Diskurinn sýnir á auðveldan hátt hvernig máltíð er vel samsett. Veggspjald A4 stærð.
Fæðuhringur A2
Nýr fæðuhringur var gefinn út í nóvember 2005. Fæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum og nú er sú nýbreytni að mikilvægi hreyfingar er tengd við fæðuhringinn.
Fæðuhringurinn kemur í þremur stærðum, A2, A3 og A4 en þá er hreyfihringurinn á hinni hliðinni.
Fæðuhringur A3
Nýr fæðuhringur var gefinn út í nóvember 2005. Fæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum og nú er sú nýbreytni að mikilvægi hreyfingar er tengd við fæðuhringinn.
Fæðuhringurinn kemur í þremur stærðum. Fæðuhringurinn kemur í þremur stærðum, A2, A3 og A4 en þá er hreyfihringurinn á hinni hliðinni.
Fæðuhringur/hreyfihringur A4
Nýr fæðuhringur var gefinn út í nóvember 2005. Fæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum og nú er sú nýbreytni að mikilvægi hreyfingar er tengd við fæðuhringinn.
Fæðuhringurinn kemur í þremur stærðum, A2, A3 og A4 en þar eru saman fæðu- og hreyfihringur. Fæðuhringurinn kemur í þremur stærðum, A2, A3 og A4 en þá er hreyfihringurinn á hinni hliðinni.
Holl fæða - heilsunnar vegna
Holl fæða - heilsunnar vegna er veggspjald þar sem fólk á öllum aldri er hvatt til að vanda fæðuvalið!
Borðum grænmeti og ávexti 5 á dag
Borðum grænmeti og ávexti 5 á dag er veggspjald gefið út af Fræðslusjóði Hjartaverndar, Krabbameinsfélagsins og Manneldisráðs árið 2000.


